Hvað er að gerast, tvö blogg á stuttum tíma 
Fín helgi að baki, reyndar ekki flogið neitt voðalega mikið en
aðeins þó og safnast þetta smá saman. Veðrið er aðeins búið að
stríða okkur flugmönnum á litlu sjónflugsvélunum, eða öllu heldur
skýjahæðin, ekki hægt að kvarta svo sem undan veðrinu.
Föstudagurinn fór náttúrulega í vinnu eins og við má
búast, vá hvað ég get ekki beðið eftir næstu
mánaðarmótum....frí..., svo var verslað aðeins og farið á
Stylinn með mömmu, Maríu og Óla. Kvöldið var svo
bara rólegt eins og vant er, horft á Die Hard 2, erum að
rifja upp svo við getum farið á 4 í bíó... Hippie
kajei mother fucker 
Svo var Laugardagurinn tekinn í búðarölt og mannlífs tjekk.
Fengum okkur loksins náttborð sem koma ábyggilega vel út við nýja
rúmið. Slóum svo í svaka grillveislum um kvöldið... ef
veislu má kalla..við Unnur, mamma, María og Óli
Grilluðum
grísakjöt sem var bara alveg ágætt og gaman að fá fólk í mat svona
annaðslagið. Við Unnur skelltum okkur svo á Evan Almighty sem er by
the way mjög fyndin, ég bókstaflega grenjaði úr hlátri...
Gærdagurinn (Sunnudagur
) fór svo í flug, kaffiboð, bíltúr,
út að borða, ís og byrjun á Die Hard 3. Nóg að gera og má því segja
að þetta hafi bara verði hin fínasta helgi... Kaffið var heima þar
sem að ég sýndi snilli mína í eldhúsinu og gerði þessa fínu
vöflur... home made
jú svo bakaði Unnur líka köku sem var ágæt
nei segi svo hún var rosalega góð og held bara að hún sé
enn meiri snillingur í eldhúsinu en ég.
Sit núna bara í vinnunni og reyni að gera eitthvað af viti,
lítið að gera og get ekki sagt annað en að ég sé kominn með
svolitla leiðu á þessu. Svo er bara verið að bíða og bíða eftir að
litla frænka láti sjá sig... vona bara að hún María mín
þurfi ekki að ganga mikið lengur með hana. Hversu mikið er
hægt að leggja á eina manneskju...?
en þangað til næst..kv. Haukur blogggg-glaði