Hríseyingurinn fljúgandi...

Björgvin H.

06.07.2007 09:23:54 / haukur_fl

Sumar

Veit ekki hvort að ég eigi að þora að slrifa hérna inn þar sem að ég hef ekki haft mig í að blogga í einn og hálfan mánuð :S 8|

Annars er allt gott að frétta bara, okkur Unni líður mjög vel í Hrafnhólunum og má segja að þessir rúmu tveir mánuðir sem að við erum búin að búa þar hafi liðið hratt og vel. Íbúðin er frábær og nágrannarni ágætir...svona þeir sem að maður veit um! Auðvitað eru alltaf einhverjir sauðir inn á milli sem að eru með læti og vaka fram á nótt en við hverju er svo sem að búast í svona fjölbýli. Höfum ekki enn lent í neinu miklu, jú reyndar vaknað upp í ein tvö skipti við einhver smá læti...en finnst það nú alveg ásættanlegt á tveim mánuðum.

Sumarið hefur liðið skrattanum hraðar og manni finnst enganveginn vera kominn júli. En svona er þetta og má segja að tíminn líði hratt þegar mikið er að gera. Við erum nú ekki búinn að gera mikið í sumar annað en að vinna og vera í RVK. Erum þó búin að fara tvisvar norður, á sjómannadag og svo á flugdag á AK.
Seinni helgina stoppuðum við í Skagafirðinum og gistum í bændagistingu sem var dálítið skrautleg ;) samt bara gaman að gera eitthvað öðruvísi, ekki alltaf bara að bruna norður og svo aftur suður. Fórum svo á flugdaginn sem var alveg ágætur, hefði reyndar mátt vera aðeins minni norðanátt! Svo var stoppað aðeins í Hrísey á laugardagskv. og gist þar. Sunnudagurinn var svo tekinn í ró ef ró skildi kalla... fórum í sveitina hjá Birra, Jólalandið og svo var ekki annað hægt en að fá sér ís í Vín áður en haldið var aftur suður. S.s fínasta helgi bara ;)

Flugið gengur ágætlega, er búinn að kenna slatta af tímum en betur má ef duga skal og vonandi verður restin af sumrinu aðeins betri. Stefnan er tekin á að vera kominn allavega hundrað tímum nær markinu í haust 8|

Svo er það Tyrkland í ágúst, getum ekki beðið... verðru ljúft að liggja á ströndinni og sóla sig ;)

þangað til næst.. kv. Björgvin

María skrifaði
Jæja það var mikið að beljan bar!!!! Nei segi nú svona. Bara ljómadi góð færsla hjá þér bróðir;) Takk kærlega fyrir okkur í gær, ágætt að þurfa ekki að elda núna;) Svo er bara um að gera að vera duglegur að blogga þannig að ég hafi eitthvað að lesa;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  26  Alls: 53645
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 4 mars