Jæja, ég held að ég sé nú búinn að slá nýtt met í bloggleti hérna. Ég vil bara biðja alla þá sem að ennþá nenna að kíkja hingað inn afsökunar og lofa að ég mun bæta mig í blogginu framvegis.
Af okkur í Hrafnhólunum er allt gott að frétta, erum búinn að koma okkur vel fyrir og líður bara alveg ótrúlega vel. Settum loks upp gardínur í stofu og eldhús þegar við sáum hversu tómlegt þetta var þegar jólaljósin voru tekin niður! Fyndið hversu blindur maður getur orðið á suma hluti. Geysir litli dafnar vel og er orðin algjör grallari, tók smá tíma fyrir hann að aðlagast aftur eftir norðurferðina um jól og áramót en er búinn að taka gleði sína á ný. Er búinn að redda okkur í gegnum undanfarnar vikur, gott að hafa einn svona til að kæta mann. Svo er bara að koma í heimsókn svona þeir/þau sem ekki hafa verið nógu dugleg við það. Þ.e. ef að maður verður bara ekki fluttu úr Reykjavík, veit ekki hvort maður vill búa í svona sveitarfélagi, hvað er málið með þessa pólitíkusa? Ekki eðlilegt að vera kominn með enn nýja borgarstjórn!!! Kannski bara að maður fari í Kópavoginn..."það er gott að búa í Kópavogi" sagt með góðri undirhöku og dimmum tón 
Jólin og áramótin voru alveg ágæt, við fórum norður og áttum góðar stundir í Lambhaga utanvið nokkra frekar erfiða daga. Allt er þetta samt að komast í betra horf og horfum við björtum augum á framtíðina. Vonum bara að það gangi betur næst. Við systkynin settum upp smá myndasíðu frá okkur öllum og hér er linkurinn á hana. Gaman að hafa svona sameiginlega síðu þar sem við vorum öll fyrir norðan.
Vinnan og skólinn ganga sinn vanagang, hef ekki flogið mikið undanfarið enda hvorki veður né nógu langir daga til þess. En það stendur nú bara til bóta og stefni ég á að vera kominn í tímana mína næsta haust. Unni gengur vel í skólanum og er svaka dugleg, skil ekki hvernig ein manneskja getur verið svona sterk og dugleg, vinna og svo í svona erfiðum skóla.
En það er best að halda aðeins áfram að vinna, þangað til næst... kv. BHN